Hefst hún kl. 14.00 í Kirkjuhvoli. Þar koma fram nemendur Heilsuleikskólans Kærabæjar og Kirkjubæjarskóla og skemmta gestum með leik og söng. Í ár sýna krakkarnir valda kafla úr :
Emil í Kattholti
e. Astrid Lingren
Aðgöngumiðaverð er kr. 1000 fyrir 16 ára og eldri.
Að sýningu lokinni er öllum boðið í matsal Kirkjubæjarskóla þar sem á borðstólnum verður kaffi og meðlæti.
Einnig verður í skólanum skemmtun fyrir yngri kynslóðina í umsjón 6. og 7. bekkjar
Hvetjum allt til að koma og sjá skemmtilega sýningu og bregða sér síðan í skólann og gæða sér á dýrindis veitingum!
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .