Fyrirlestur í boði Foreldrafélags Kirkjubæjarskóla
26.apríl 2023
Svefninn er okkur öllum mikilvægur til þess að gefa líkamanum hvíld og tækifæri til að endurnærast eftir erilsama daga. Of lítill svefn getur valdið vanlíðan, þreytu og hefur áhrif á einbeitingu,minni og rökshugsun. Þetta vitum við sem eldri eru en börnin eiga oftar en ekki erfitt með að skilja mikilvægi þess að hvílast yfir nóttina. Hvað er þá til ráða?
Foreldrafélag Kirkjubæjarskóla í samstarfi við skólann býður foreldrum grunnskólabarna á fyrirlestur um svefn frá fyrirtækinu Betri svefn þar sem sérfræðingur á þeirra vegum mun gefa foreldrum góð ráð til að aðstoða börn sín við að hlúa að svefninum.
Hvenær: miðvikudagin 26. apríl nk kl. 14.- ath ! skóla lýkur kl. 13.45.
Hvar: í matsal Kirkjubæjarskóla
Hlökkum til að sjá ykkur !
Stjórn Foreldrafélags Kirkjubæjarskóla
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .