Haustferðin verður farin á morgun þriðjudaginn 4. september og er förinni heitið í þetta sinn inn að Eldgjá. Landvörður mun taka á móti hópnum og leiða göngu inn að Ófærufossi. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 9:00 og er áætluð heimkoma um 15:30 - 16:00
Veðurspá er þokkaleg fyrir morgundaginn en við minnum nemendur á að koma með hlýjan klæðnað og góða skó til göngu.
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .