Í dag 24. október eru konur hvattar til að ganga út af sínum vinnustað kl. 14.55 í þeim tilgangi að vekja athygli á þeirri staðreynd að ennþá er um kynbundin launamun á Íslandi að ræða. Boðað hefur verið til samstöðufunda á mörgum stöðum á landinu af þessu tilefni. Hér í Skaftárhreppi ætlum við að boða til samstöðufundar í félagsheimilinu og hefur því verið ákveðið að stytta skóladaginn í dag .
Skólahaldi lýkur kl. 14.55 og skólabílar munu leggja af stað kl. 15.00 í stað 15.20.
Með kærri kveðju
Katrín Gunnarsdóttir
skólastjóri
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .