Sérstakt lestrarátak fór af stað í Kirkjubæjarskóla föstudaginn 17. apríl s.l. Nemendur skrá þann tíma sem þeir hafa lesið, hlustað á hljóðbók auk þess tíma sem lesið hefur verið fyrir yngstu nemendurna.
Ýmsar útfærslur eru á hvatningakerfi hvers nemendahóps en allir nemendur eiga að fylla út sérstakan kjalarmiða með nafni bókar sem þeir hafa lokið við.
Lestrarátakið mun standa yfir til og með 4. maí.
Það verður spennandi að sjá hversu hratt bókahillurnar fyllast.
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .