Í dag tóku nemendur og starfsmenn skólans þátt í Norræna skólahlaupinu. Katarzyne íþróttakennari hafði merkt hlaupaleið inn að Geirlandi þar sem hægt var að velja um þrjár vegalengdir, 2,5 km, 5 km og 10 km. Yngstu nemendurnir hlupu 2,5km en aðrir gátu valið um 5 eða 10 km. Hlaupið tókst mjög vel, veðrið var yndislegt og hlaupaleiðin falleg. Allir hlupu eins og þeir gátu og höfðu gaman af.
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .