Kæru foreldrar/forráðamenn og nemendur
Vegna eindreginnar óska fræðslunefndar hefur breyting verið gerð á fyrirkomulagi skólasetningar n.k. föstudag, 21. ágúst, og mun athöfnin fara fram í íþróttahúsinu í stað matsal skólans. Tímasetning er óbreytt og hefst athöfnin kl. 10.00
Til að nýta plássið sem best og tryggja fjarlægðarmörk verður ekki boðið upp á sæti heldur ætlast til að nemendur og foreldrar standi og dreifi sér um salinn. Foreldrar eru beðnir um að virða 2 metra fjarlægðarmörk, þ.e. milli þeirra sem ekki deila sama heimili. Minnum á að ákvæði um fjarlægðartakmörk gilda ekki fyrir nemendur né systkini þeirra fædd 2005 ( misritaðist í tölvupósti) og síðar.
Starfsmenn skólans munu hafa til reiðu andlitsgímur fyrir þá foreldra sem þess óska.
Athöfnin sjálf mun taka u.þ.b. 10 mínútur og að henni lokinni munu nemendur fylgja kennara sínum yfir í skólann og í sínar stofur þar sem m.a. stundatöflur verða afhentar.
Foreldrar barna í 1.-2. bekk hafa fengið tölvupóst varðandi komu þeirra í kennslustofu.
Skólabílar munu leggja af stað frá skóla kl. 11.00
Með ofangreindu skipulagi teljum við það mögulegt að bjóða foreldrum til skólasetningar án þess að reglugerð heilbrigðisráðherra sé brotin og ekki sé farið á svig við tilmæli sóttvarnarlæknis.
Sjáumst öll n.k.föstudag
Starfsfólk KBS
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .