Nýútgefna skýrslu með niðurstöðum úr ESPAD-könnuninni 2019 um vímuefnanotkun unglinga á Suðurlandi auk tveggja svæða til samanburðar má nálgast hér.
Markhópur rannsóknarinnar voru allir 15─16 ára nemendur í 10. bekk á Íslandi þegar könnunin var lögð fyrir vorið 2019. ESPAD er langstærsta rannsóknarverkefni samtímans á vímuefnaneyslu og öðrum þáttum í lífi unglinga hvað varðar fjölda landa sem taka þátt, fjölda nemenda í hverri umferð og lengd þess tímabils sem verkefnið nær til.
Í þessari skýrslu eru helstu niðurstöður ESPAD 2019 dregnar saman fyrir 10. bekkinga á Suðurlandi. Samanburðarhópar eru annars vegar höfuðborgarsvæðið og hins vegar landsbyggðin án Suðurlands.
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .