Í dag afhentu nemendur söfnunarfé það sem gestir opna hússins létu af hendi rakna til styrktar Krabbameinsfélagi V- Skaftafellssýslu.
Fór vel á að yngsti nemandi skólans, Jökul Ström og sá elsti, Ásgeir Örn afhentu Þórunni Júlíusdóttur, ritara Krabbameinsfélagsins, baukinn góða með söfnunarfénu kr. 81.600. Þórunn færði nemendum þakkir fyrir að velja Krabbameinsfélag V- Skaftafellssýslu og gestum opna hússins kærar þakkir fyrir ríkulegan stuðning sem mun koma sér afar vel fyrir hið mikilvæga starf félagsins sem felst m.a. í að styrkja einstaklinga sem dvelja hafa þurft langdvalar í Reykjavík vegna krabbameinsmeðferðar
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .