Í tilefni að Degi íslenskrar tungu þann 16.nóvember söfnuðust nemendur og kennarar Kirkjubæjarskóla saman í matsal skólans fluttu ýmis atriði sem voru tileinkuð þessum degi. Nemendur unglingastigs sögðu frá tilurð og tilgangi þessa dags. Nemendur 1.-3. bekkjar sungu ljóð Þórarins Eldjárns við lag Atla Heimis Steinssonar, Á íslensku má alltaf finna svar, og íslensku stafófsvísuna. Því næst stigu á stokk nemendur 6.-7. bekkjar og lásu ljóð eftir ýmis þekkt og minna þekkt ljóðskáld. Það voru síðan nemendur 4.-5. bekkjar sem létu Dæluna ganga, en það er þekkur leikur úr hinum vinsæla sjónvarpsþætti, Kappsmál. Var þetta virkilega skemmtilegur viðburður og góð byrjun á góðum fimmtudegi.
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .