Lausar stöður stuðningsfulltrúa !

Kirkjubæjarskóli á Síðu óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa.  Þarf að geta hafið störf sem fyrst.  Um er að ræða tvær 50% stöður eða eina 100% stöðu.  

Stuðningsfulltrúi er kennara til aðstoðar við að sinna einum og/eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega -og í daglegum athöfnum.

Einnig eru lausar tvær stöður skólaliða, starfshlutfall 80-100% eða eftir samkomulagi

Skólaliði tekur þátt í uppeldisstarfi og öðrum störfum sem fram fara innan skólans. Megin áhersla er lögð á velferð og vellíðan nemenda. Hann sér um að halda húsnæði og skólalóð hreinni.

Menntun og hæfniskröfur

  • Kostur að hafa lokið námi sem stuðningsfulltrúi/skólaliði
  • Hafa reynslu af störfum með börnum
  • Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleika og jákvæðni.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og stundvísi.
  • Geta tjáð sig lipurlega á íslensku
  • Flekklaus starfsferill og hreint sakavottorð

 

Launkjör fara eftir samningum Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknir skal senda á netfangið skolastjori@klaustur.is sem og fyrirspurnir um starfið.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá, meðmælendur og sakavottorð. Umsóknarfrestur er til 21.8.2022.

 

Skólastjóri Kirkjubæjarskóla á Síðu