Má bjóða þér að eignast hamingjuvalda i Kirkjubæjarskóla á Síðu ?
Lausar stöður stuðningsfulltrúa og skólaliða
Kirkjubæjarskóli á Síðu óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa. Um er að ræða tvær 50% stöður.
Stuðningsfulltrúi er kennara til aðstoðar við að sinna einum og/eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega -og í daglegum athöfnum.
Einnig eru lausar tvær stöður skólaliða, starfshlutfall 80-100% eða eftir samkomulagi
Skólaliði tekur þátt í uppeldisstarfi og öðrum störfum sem fram fara innan skólans. Megin áhersla er lögð á velferð og vellíðan nemenda. Hann sér um að halda húsnæði og skólalóð hreinni.
Menntun og hæfniskröfur
Launkjör fara eftir samningum Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir skal senda á netfangið skolastjori@klaustur.is sem og fyrirspurnir um starfið.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá, meðmælendur og sakavottorð. Umsóknarfrestur er til 22.júlí 2022.
Skólastjóri Kirkjubæjarskóla á Síðu
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .