Ný reglugerð um takmörkun á skólastarfi tók gildi þann 15.apríl og gildir til 5. maí n.k.
Reglugerð þessi gildir um starf grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla.
Þau atriði sem snúa að grunnskóla eru skv.4 gr. reglugerðarinnar:
4. gr.
Grunnskólar.
Grunnskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi, þ.m.t. íþróttastarfi, í skólabyggingum með 1 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks. Sé starfsfólki ekki unnt að tryggja 1 metra nálægðartakmörkun sín á milli og gagnvart nemendum skal það nota andlitsgrímur. Ekki skulu vera fleiri en 20 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa og rýma. Sömu reglur gilda um starfsfólk skólaþjónustu og starfsfólk tónlistarskóla.
Nemendur eru undanþegnir 1 metra nálægðartakmörkun og grímuskyldu. Ekki skulu vera fleiri en 50 nemendur í hverju rými. Blöndun milli hópa innan skóla er heimil.
Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, sem og í mötuneytum og skólaakstri, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun að því gefnu að starfsfólk noti andlitsgrímu.
Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi grunnskóla, svo sem fyrirlestrar, upplestrarkeppnir o.fl., eru óheimilir fyrir aðra en nemendur og kennara. Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema nauðsyn beri til og skulu þá nota andlitsgrímu.
Aðrir sem koma inn í grunnskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu halda 1 metra takmörkun, bera andlitsgrímur og gæta sóttvarnaráðstafana.
Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag og milli hópa í sama rými.
Hér er tengill á reglugerð 405/2021
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .