Síðasti skiladagur umsókna fyrir fjölskyldu-ART á vorönn 2021 er miðvikudagurinn 2. desember til 16:00.
Umsóknir skulu sendar á ART teymið Austurvegi 56, 800 Selfoss. Umsóknareyðublað má finna á heimasíðu ART teymisins www.isart.is og gátlistar sem þurfa að fylgja með eru einnig á heimasíðunni. Mikilvægt er að ljósrit af nýjustu greiningu/greiningum viðkomandi barns fylgi umsókninni.
Fjölskyldu-ARTið er afar hentugt fyrir börn sem til dæmis standa illa félagslega, eiga í erfiðleikum með samskipti við aðra, hafa lágt sjálfsmat, veika sjálfsmynd, eiga erfitt með sjálfstjórn, kunna ekki að setja sér mörk, eru kvíðin eða eru slök í siðferðishugsun.
Endilega hafið samband við ART teymið ef einhverjar spurningar koma upp.
KV.
Sigríður Þorsteinsdóttir
ART - Teymi
8600427
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .