Skólasetning Kirkjubæjarskóla er miðvikudaginn 24. ágúst kl. 10:00.
Dagurinn verður með þeim hætti að byrjað verður á stuttri athöfn í matsal Kirkjubæjarskóla.
Síðan fara nemendur með umsjónarkennurum í stofur og verða til hádegis með umsjónarakennara.
Krakkarnir fá hádegismat kl. 12:25. Við endum síðan daginn á leikjastund þar sem nemendur og starfsmenn koma saman og eiga skemmtilega stund saman.
Skólaakstur er bæði um morguninn og einnig þegar skóla lýkur kl. 14:00.
ÞIÐ ÞURFIÐ EKKI AÐ HUGSA UM AÐ ELTAST VIÐ AÐ KAUPA NÁMSGÖGN ÞETTA ÁRIÐ.
SKÓLINN SÉR UM AÐ ÚTVEGA ALLT SEM TIL ÞARF OG SELUR Á KOSTNAÐARVERÐI TIL HEIMILA.
ATH. HEIMILI ÞURFA AÐ ÚTVEGA:
PENNAVESKI, SKÓLATÖSKU, ÍÞRÓTTAFÖT/SUNDFÖT og VASAREIKNI (8. – 10. bekkur)
Ath. foreldrar sem eiga eftir að skrá börn í skólann eru beðnir um að gera það sem allra fyrst.
Hægt er að gera það með því að senda póst á skolastjori@klaustur.is
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .