Áætlað var að þemavinna hæfist í fyrramálið og stæði yfir fram að helgi en vegna mikillar manneklu á leikskóla er erfitt að tryggja að þeir starfsmenn Krikjubæjarskóla sem eiga börn á leikskóla komist til vinnu þessa daga.
Því hefur verið ákveðið að færa þemadagana fram í næstu viku frá þriðjudegi til hádegis á fimmtudag. Við ljúkum svo þemadögum með hrekkjavökuballi sem unglingarnir á efsta stigi standa fyrir. Skóladegi mun ljúka á hefðbundnum tíma þessa daga eða kl. 15.20.
Vegna ástandsins í þjóðfélaginu munum við ekki geta boðið gestum til okkar í lok þemadaga líkt og venja hefur verið en horfum björtum augum til næsta árs og erum vongóð um að geta sýnt afrakstur vinnunnar á afmælishátíð skólans haustið 2021.
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .